Tegundir skápa
Hvað hentar þínu rými?

Opinn fataskápur
Opnir skápar eru orðin vinsæl lausn á nútíma heimilum, sérstaklega þar sem lögð er áhersla á léttleika og rýmisnýtingu. Þeir gera fatnað og fylgihluti hluta af innréttingunni og veita betri yfirsýn, sem getur auðveldað daglegt val á fötum. Opnir skápar krefjast minni efniviðar og geta því verið hagkvæmari valkostur en hefðbundnir skápar. Þeir hvetja einnig til betra skipulags þar sem allt er sýnilegt og aðgengilegt. Að auki geta þeir stækkað minni herbergi með því að forðast stórar og þungar hurðir.

Hefðbundinn fataskápur
Fataskápar eru grundvallaratriði til þess að halda heimilum snyrtilegum, svo ekki er verra að hafa þá fallega sem og nothæfa. Fataskápar bjóða upp á góða nýtingu með hillum, skúffum og slám, sem auðveldar skipulag á fatnaði og fylgihlutum. Þeir eru einnig fjölbreyttir í útliti og stærðum, sem auðveldar val á skáp sem fellur að stíl og þörfum hvers heimilis.

Fataherbergi
Fataherbergi eru að verða sífellt vinsælli á íslenskum heimilum og bjóða upp á ýmsa kosti. Til að mynda gott skipulag og betra aðgengi að fatnaði, skóm og fylgihlutum. Fataherbergi veita einnig betri loftun og varðveislu á fötum, sem getur lengt líftíma þeirra. Að lokum eru þau lúxus sem getur aukið verðmæti eignarinnar og bætt lífsgæði með meiri þægindum og rými.
Þinn fataskápa stíll
Mikið og margt sem þarf að hafa í huga þegar kemur að hönnun fataskápa.
Útlitið, skipulags lausnir, lýsing og hvort hann sé opinn eða ekki.
Notaðu tvo putta til að snúa fataskápnum

Fataskápar eftir þínu höfði.
Fyrir þínar fínustu flíkur
