top of page
Lógó án bakgrunns.png
Drangsskarð 2 Stærra eldhús Render.PNG

Heyrðu í okkur fyrir verðtilboð

Komdu með hugmyndir eða teikningar og fáðu ráðgjöf um efni, útfærslur og verð.

Góð innrétting byrjar á skýrri hugmynd. Þess vegna bjóðum við upp á ráðgjöf þar sem við förum yfir verkefnið með þér og hjálpum þér að átta þig á næstu skrefum.

Best er að koma með skissur, teikningar eða hugmyndir sem þú hefur þegar unnið að, hvort sem þær eru frá þér sjálfum, arkitekt eða öðrum hönnuði. Ef ekkert slíkt liggur fyrir er það ekkert vandamál. Við getum farið yfir rýmið, þarfirnar og það sem þú vilt fá út úr innréttingunni.

Á fundinum sýnum við þér möguleg efni, liti, höldur, innvols og lausnir sem henta verkefninu. Við förum einnig yfir hvað er mögulegt í framleiðslu, hvað hefur áhrif á verðið og hvar hægt er að einfalda eða bæta útfærsluna.

Eftir fundinn tökum við saman það sem liggur fyrir og gefum þér verðhugmynd út frá þeim upplýsingum. Ef verkefnið hentar og þér líst vel á framhaldið er næsta skref að bóka hönnunarpakka hjá okkur. Þar er hugmyndin fullmótuð, vinnu- og útlitsteikningar unnar og verkefnið undirbúið fyrir nákvæmt tilboð og sérsmíði.

bottom of page