Lokaðu á
amstur dagsins
Opnaðu á nýjan möguleika
Sérsmíðaðar innihurðir
Innihurðir hafa mikil áhrif á heildarútlit heimilisins og þurfa að sameina fallega hönnun, góða endingu og þægilega daglega notkun. Þær skipta ekki aðeins máli fyrir útlitið, heldur líka fyrir hljóðvist, flæði og tilfinninguna á milli rýma.
Efnisval, litur, karmar, höldur, opnunarátt og frágangur eru allt þættir sem hafa áhrif á lokaútkomuna. Með vel völdum innihurðum má skapa heildstætt yfirbragð á heimilinu þar sem hurðirnar falla fallega að rýminu og verða náttúrulegur hluti af innréttingunni.


Innihurðir okkar
Innihurðirnar okkar eru sérsmíðaðar eftir máli og því hægt að aðlaga þær að nánast hvaða rými sem er. Hvort sem um er að ræða hefðbundnar hurðir, háar hurðir, innfelldar lausnir eða sérstakar stærðir, þá er útfærslan sniðin að verkefninu.
Við bjóðum upp á fjölbreytt efnisval, meðal annars spón, harðplast og aðrar sérlausnir eftir óskum. Allur búnaður er vandaður og valinn með endingu, nákvæmni og daglega notkun í huga.
