top of page
Lógó án bakgrunns.png

Fataskápar eftir þínu höfði.

Fyrir þínar fínustu flíkur

Þinn fataskápa stíll

Við hönnun fataskápa skiptir máli að huga að útliti, skipulagi, lýsingu og því hvort lausnin eigi að vera opin eða lokuð.

Vel útfærður fataskápur nýtir plássið betur, auðveldar skipulag og fellur fallega að stíl heimilisins.

Notaðu tvo putta til að snúa fataskápnum

Sérsmíðaður fataskápur

Tegundir fataskápa

Vinsælar útfærslur

Gerðu skápinn þinn

Slár

Fataslár og fatalyftur eru mikilvægur hluti af vel skipulögðum fataskáp. Þær auðvelda aðgengi að fatnaði og nýta hæð skápsins betur.

Fataslár fást í mismunandi lengdum, litum og útfærslum, til dæmis svartar, krómaðar eða gylltar. Fatalyftur henta sérstaklega vel í hærri skápa eða þar sem nýta á tvær hæðir af fataslám án þess að skerða aðgengi eða þægindi.

Fataslár í Sérsmíðaðan fataskáp
Skúffur í fataskápa

Útdrög

Útdrög í fataskápum skipta miklu máli fyrir gott skipulag og dagleg þægindi. Með því að draga hluti fram fæst betri yfirsýn, auðveldara aðgengi og minna vesen við að ná í það sem liggur aftar í skápnum.

Við bjóðum upp á fjölbreyttar útdragslausnir, allt frá vírkörfum og hefðbundnum skúffum yfir í fágaðar glerskúffur fyrir léttara og lúxuslegra yfirbragð. Rétt útfærð útdrög gera fataskápinn notendavænni, snyrtilegri og þægilegri í daglegri notkun.

Opnanir

Opnun fataskápa er mikilvægur hluti af heildarútfærslunni og hefur áhrif á bæði útlit og daglega notkun. Hægt er að velja rennihurðir, hefðbundnar hurðir eða opnar lausnir, allt eftir rými, stíl og þörfum.

Grip og höldur eru hluti af lokafráganginum og geta breytt yfirbragði skápsins töluvert. Hvort sem valin eru sýnileg handföng, innfelld grip eða einfaldari griplausnir er hægt að móta útlitið þannig að það falli vel að innréttingunni og heimilinu.

Höldur á sérsmíðaðan fataskáp
IMG_5913_edited_edited.jpg
bottom of page