top of page

Viltu smíða eitthvað glæsilegt?
Starf hjá Birninum
Björninn er rótgróið íslenskt innréttingafyrirtæki í Hafnarfirði með yfir hálfrar aldar reynslu. Við sérhæfum okkur í sérsmíðuðum innréttingum, borðplötum og lausnum fyrir heimili og fyrirtæki.
Við leitum að jákvæðum og áreiðanlegum einstaklingi með reynslu í smíði til að ganga til liðs við lítið en öflugt teymi.

Helstu verkefni
-
Almenn vinna í framleiðslu, svo sem spónlagning, sögun, samsetning og gæðaeftirlit
-
Að fylgja verklagi og tryggja vönduð vinnubrögð
-
Þátttaka í daglegu skipulagi og samvinnu á verkstæði
-
Samskipti við samstarfsfólk, birgja og viðskiptavini
Við leitum að einstaklingi með
-
Mikla reynslu í smíði
-
Góð vinnubrögð og jákvætt viðmót
-
Ábyrgð, nákvæmni og sjálfstæði
-
Getu til að lesa úr teikningum
-
Góð samskipti og vilja til að læra
Fyrirkomulag og umsóknir
Um fullt starf er að ræða á trésmíðaverkstæði í Hafnarfirði. Laun og ráðningarkjör samkvæmt samkomulagi. Leitum að einstaklingi sem vill starfa í traustu og stöðugu teymi til lengri tíma.
Sendu umsókn, ferilskrá og stuttan kynningartexta í gegnum umsóknareyðublaðið hér að neðan eða á tölvupósti.
bottom of page
