
01.
Hönnun
Til geta gefið þér nákvæmt tilboð þarf hugmyndin fyrst að komast niður á blað. Þú getur séð um hönnunina sjálfur, fengið þriðja aðila til þess eða bókað tíma með hönnuði okkar.
Hönnuðurinn getur komið heim til þín og farið yfir rýmið, þarfir þínar, skipulag, efnisval, útlit og mögulegar lausnir. Þegar hönnunin liggur fyrir getum við reiknað verkefnið nákvæmlega og útbúið handa þér tilboð.
Ef hönnunin er ekki fullmótuð getum við þó gefið grófa verðhugmynd út frá einföldum teikningum eða skissum.
.png)


Skýrt ferli
Ekkert fer í framleiðslu fyrr en þú hefur samþykkt lokaútfærsluna. Við mælum rýmið nákvæmlega og þú ert í beinu sambandi við tengilið þinn hjá Birninum allan tímann.
Hönnuður getur komið á staðinn og hjálpað þér með útfærslur og efnisval. Einnig er hægt að fá tilboð í uppsetningu og heimsendingu, ásamt betri kjörum hjá völdum samstarfsaðilum okkar.
_edited.jpg)
Ferlið
Í stuttu máli
Ferlið
Í heild sinni

02.
Tilboð
Næst gerum við tilboð í verkið út frá teikningunum. Þar kemur skýrt fram hvað er innifalið, hvaða efni eru notuð og hvernig innvolsið er útfært..
Til að staðfesta verkefnið og tryggja pláss í framleiðsludagatalinu þarf að greiða staðfestingargjald.
Þótt tilboðið sé samþykkt er útfærslan ekki endanleg. Í næsta skrefi förum við nánar yfir verkefnið og þá geta smáatriði breyst áður en það fer í framleiðslu.
03.
Skipulag
Næst bókar þú mælingarmann heim til þín sem tekur öll nauðsynleg mál. Teikningarnar eru síðan uppfærðar í samræmi og lokaútfærslan negld.
Þá tekur við nákvæm yfirferð þar sem hver skápur, lausn og smáatriði eru skipulögð áður en verkið er magntekið og efni pantað. Þetta er mikilvægur hluti ferlisins sem tryggir að allt passi saman áður en framleiðsla hefst.


04.
Framleiðsla
Þegar skipulagi er lokið hefst framleiðslan á verkstæðinu okkar. Þar sameinast nákvæm tækni, vönduð handavinna, hágæða efniviður og búnaður frá traustum birgjum.
Hver innrétting er sérsmíðuð frá grunni og unnin af fagfólki með áherslu á gæði, frágang og smáatriði.
05.
Afhending og frágangur
Þegar innréttingin er tilbúin og eftirstöðvar hafa verið greiddar er hún afhent. Hægt er að fá sérstakt tilboð í heimsendingu ef þess er óskað.
Einnig er hægt að fá tilboð í uppsetningu hjá okkur. Þá sjá fagmenn um að koma innréttingunni fyrir og ganga frá henni á réttan hátt.
Að uppsetningu lokinni er verkið tekið út. Þá förum við yfir fráganginn og tryggjum að allt sé eins og það á að vera.

Áður en þú heldur áfram.
Að versla sér sérsmíðaðar innréttingu er stór ákvörðun svo mikilvægt er að hafa allar mögulegar upplýsingar.
Hér fyrir neðan getur þú haft samband við okkur á máta sem þér hentar, greinar með ýmsum ráðum þegar kemur að hönnun og hvað þarf að hafa í huga við skipulag og hönnun eldhúsa, fataskápa og fleira. Einnig eru svör við ýmsum algengum spurningum.
