top of page
Lógó án bakgrunns.png

Baðaðu þig í fegurðinni

Baðið á að endurspegla þig.

Upphaf og endir hversdags

Baðherbergið er eitt mikilvægasta rými heimilisins og þarf að sameina fallegt útlit, góða endingu og praktíska notkun. Þar skiptir máli að huga vel að skipulagi, efnisvali og þeim lausnum sem gera daglega notkun þægilegri.

Dýpt skápa, faldar skúffur, borðplötur, lýsing og gott aðgengi eru allt þættir sem hafa áhrif á heildarútkomuna. Með vel útfærðri baðinnréttingu má skapa draumabaðherbergi sem er bæði fallegt, notadrjúgt og sérsniðið að þörfum heimilisins.

Baðherb.png

Notaðu tvo putta til að snúa innréttingunni

Úthugsað rými

Hvað hentar þínu rými?

IMG_6286_edited.jpg

​Nýting á plássi

Þegar pláss er takmarkað skiptir máli að nýta hvern fermetra vel. Innbyggðar hillur, skápar og speglaskápar eru góðar lausnir á baðherbergjum þar sem þau skapa geymslu án þess að taka mikið pláss.

Einnig má nýta svæði sem oft gleymast, til dæmis fyrir ofan salerni eða undir vaski, með sérhönnuðum hillum, skúffum eða körfum.

Drangsskarð 2 Baðherbergi render.PNG

Skipulag

Sérsmíðaður vaskaskápur nýtir rýmið vel og er útfærður eftir þörfum, stíl og notkun. Þar má huga að geymslu, aðgengi, vinnusvæði og borðplötu þannig að lausnin verði bæði falleg og praktísk.

Við mælum með skúffum með skipulagshólfum frekar en skápum með hillum, þar sem þær gefa betra yfirlit og nýta rýmið betur.

IMG_6293_edited_edited.jpg

Efnisval

Rétt efnisval skiptir miklu máli í baðherbergisinnréttingum þar sem raki, hiti og dagleg notkun reyna á alla fleti. Í votrýmum þarf að velja efni sem þola raka- og hitabreytingar, eru auðveld í þrifum og halda fallegu útliti til lengri tíma.

Þannig skapast notalegt, praktískt og endingargott baðherbergi. Spónn er almennt viðkvæmari fyrir raka en melamín og því skipta rétt meðhöndlun og frágangur miklu máli.

Glacier River
bottom of page