
Góð hönnun byrjar heima
Það getur skipt miklu máli að fá hönnuð heim áður en stórar ákvarðanir eru teknar. Flest okkar vitum hvað okkur finnst fallegt, en það er annað að sjá fyrir sér réttar stærðir, góð hlutföll, flæði milli rýma, lýsingu, efnisval og hvernig heimilið virkar í daglegri notkun.
Vanur hönnuður sér rýmið með þjálfuðu auga og getur bent á lausnir sem fólk hugsar oft ekki út í sjálft. Útkoman verður markvissari hönnun, færri mistök og heimili sem hentar betur þeim sem búa þar.


Persónulegri þjónusta
Rakel er menntuð í hönnun innanhúss og húsgagna frá Istituto Europeo di Design í Flórens á Ítalíu.
Hún leggur áherslu á falleg og hagnýt rými þar sem útlit og notagildi fara vel saman.
Hvort sem verkefnið er stórt eða smátt færðu aðstoð við að móta hugmyndina og koma henni í skýra og framkvæmanlega mynd.
Heyrðu í okkur: 779-5777
