top of page
Lógó án bakgrunns.png
Hnotu eldhús melamín

Þitt hjarta heimilisins

Eldhúsið er rými sem þarf að virka vel í daglegu lífi, hvort sem það snýst um matargerð, geymslu, vinnuflæði eða samveru. Því skiptir máli að það sé vel hannað, fallegt og praktískt, með hentugri uppsetningu tækja, góðu aðgengi og geymslulausnum sem nýtast vel.

Með sérsmíði færð þú innréttingu sem er aðlöguð að þínum þörfum, ekki öfugt. Þegar útlit og virkni fara vel saman verður eldhúsið hlýlegt, aðlaðandi og vel nýtt rými sem hentar heimilinu.

Notaðu tvo putta til að snúa innréttingunni

Eldhús að þínum hætti

​Láttu hjarta heimilisins slá af krafti

Raunverulegur lúxus

Skúffur eru ein mikilvægasta lausnin í vel útfærðri innréttingu þar sem þær gefa betra yfirlit, auðvelda aðgengi og nýta rýmið betur en hefðbundnir skápar. Við notum eingöngu hágæða skúffubúnað frá einum viðurkenndasta birgja heims, með ljúflokun sem tryggir mjúka, hljóðláta og þægilega notkun í daglegu lífi.

Notaðu tvo putta til að snúa innréttingunni

Skúffa í eldhús

Skúffutegundir okkar

Töfrahorn frá Birninum

Einstök upplifun

Með sérsmíði er hægt að fara aðeins út fyrir hefðbundnar lausnir og útfæra innréttingu sem hentar bæði rýminu og þeim sem nota það. Vasahurðir, fellihurðir og sérlausnir geta gert daglega notkun þægilegri, nýtt plássið betur og gefið innréttingunni skemmtilegan karakter.

Notaðu tvo putta til að snúa innréttingunni

Vinsælustu lausnirnar

Hönnun & ráðgjöf

Hjá Birninum getur þú bókað tíma með lærðum innanhúss- og húsgagnahönnuði sem aðstoðar þig við að koma hugmyndunum á blað, móta rýmið út frá þínum þörfum og finna lausnir sem henta bæði heimilinu og daglegri notkun.

Tækni teikningarþjónusta Bjarnarins
Bóka tíma í hönnun og ráðgjöf hjá Birninum
Natural Steaming Mud
bottom of page