top of page
Lógó án bakgrunns.png

Skilmálar

Skilmálar
Almennir viðskipta- og ábyrgðarskilmálar Bjarnarins ehf.

1. Almennar upplýsingar
Björninn ehf.
Álfhella 5
221 Hafnarfjörður
Ísland
Netfang: bjorninn@bjorninninnrettingar.is
Kennitala: 490822-1780
Í skilmálum þessum er Björninn ehf. nefndur „Björninn“ eða „seljandi“. Sá aðili sem kaupir vöru eða þjónustu af Birninum er nefndur „kaupandi“ eða „viðskiptavinur“.
Skilmálar þessir gilda um sölu, framleiðslu, afhendingu og eftir atvikum uppsetningu á innréttingum, sérsmíði, fylgihlutum og tengdri þjónustu, nema sérstaklega sé samið um annað skriflega.
Ef kaupandi er neytandi ganga ófrávíkjanleg réttindi hans samkvæmt íslenskum lögum framar ákvæðum þessara skilmála. Ekkert í skilmálum þessum skal túlkað þannig að það skerði lögbundin réttindi kaupanda sem ekki er heimilt að víkja frá með samningi.

2. Samþykki skilmála
Kaupandi ber ábyrgð á að kynna sér skilmála Bjarnarins áður en gengið er frá kaupum, staðfestingargjald er greitt eða framleiðsla hefst.
Greiðsla staðfestingargjalds, undirritun tilboðs, samþykki lokateikninga eða önnur skrifleg staðfesting kaupanda telst staðfesting á því að kaupandi hafi kynnt sér og samþykkt þessa skilmála, nema annað hafi verið sérstaklega samið um skriflega.

3. Tilboð, verð og umfang verks
Tilboð Bjarnarins byggist á þeim upplýsingum, mælingum, teikningum, efnisvali og forsendum sem liggja fyrir þegar tilboð er gert.
Ef forsendur breytast eftir að tilboð er samþykkt, svo sem vegna breytinga á teikningum, efnisvali, lit, útfærslu, afhendingartíma, aðstæðum á verkstað eða öðrum þáttum, áskilur Björninn sér rétt til að endurskoða verð, afhendingartíma og umfang verks.
Flutningur, uppsetning, rafmagnsvinna, pípulagnavinna, breytingar á húsnæði, sérlýsing, undirbúningur verkstaðar og önnur vinna þriðja aðila er ekki innifalin í tilboði nema það komi skýrt fram.

4. Greiðsluskilmálar
Almennt gildir að 50% af heildarverði skal greitt sem staðfestingargjald áður en framleiðsla hefst. Eftirstöðvar skulu greiddar áður en vara er afhent, nema annað hafi verið samið um skriflega.
Ef pöntun er undir 1.000.000 kr. áskilur Björninn sér rétt til að rukka kaupverð að fullu fyrirfram.
Ef pöntun er yfir 7.000.000 kr. gilda eftirfarandi greiðsluskilmálar, nema annað sé samið skriflega:
50% staðfestingargjald við staðfestingu pöntunar.
25% þegar verkið er hálfnað.
25% þegar verkið er tilbúið til afhendingar.
Reikningar eru gjaldkræfir á útgáfudegi. Eindagi er þremur dögum síðar, nema annað hafi verið samið um skriflega.
Ef reikningur er ekki greiddur á eindaga áskilur Björninn sér rétt til að reikna dráttarvexti samkvæmt lögum, auk sannanlegs innheimtu- og lögfræðikostnaðar, eftir því sem heimilt er samkvæmt lögum. Björninn áskilur sér einnig rétt til að fresta áframhaldandi vinnu, afhendingu eða uppsetningu þar til greiðsla hefur borist.
Við sérstakar aðstæður, svo sem ef fyrri vanskil hafa átt sér stað, greiðsluhæfi er óljóst eða veruleg fjárhagsleg áhætta er til staðar, áskilur Björninn sér rétt til að krefjast frekari tryggingar eða fullrar fyrirframgreiðslu áður en vinna hefst eða heldur áfram.
Ágreiningur um einstök atriði verks veitir kaupanda ekki rétt til að halda eftir greiðslu umfram það sem nemur sanngjörnu og rökstuddu mati á hinum umdeilda hluta verksins, nema annað leiði af ófrávíkjanlegum lögum. Kaupandi skal greiða óumdeildan hluta reiknings á gjalddaga.

5. Staðfestingargjald og afturköllun pöntunar
Staðfestingargjald er greitt til að staðfesta pöntun og standa straum af undirbúningi, hönnun, ráðgjöf, efnispöntunum, framleiðsluáætlun og öðrum kostnaði sem fellur til vegna verksins.
Staðfestingargjald er almennt óafturkræft að því marki sem það endurspeglar kostnað, vinnu, skuldbindingar eða tjón sem Björninn hefur orðið fyrir vegna pöntunarinnar. Þetta gildir meðal annars um undirbúning, ráðgjöf, teiknivinnu, sérpantað efni, framleiðsluáætlanir og annan sannanlegan kostnað.
Ef kaupandi hættir við pöntun áður en framleiðsla hefst, áskilur Björninn sér rétt til að halda eftir þeim hluta staðfestingargjalds sem svarar til sannanlegs kostnaðar og tjóns vegna pöntunarinnar.
Ef framleiðsla er hafin og kaupandi hættir við kaupin, ber kaupanda að greiða þann kostnað sem þegar hefur fallið til vegna efnis, vinnu, undirbúnings, sérpöntunar og annarra útlagðra kostnaðarliða. Slíkur kostnaður getur numið staðfestingargjaldi og eftir atvikum viðbótarfjárhæð, en skal taka mið af raunverulegu umfangi verks og því tjóni sem Björninn getur sýnt fram á.
Ef Björninn getur ekki efnt samning af ástæðum sem hann ber ábyrgð á, fer um endurgreiðslu samkvæmt almennum reglum samninga- og neytendaréttar, eftir því sem við á.

6. Eignarréttarfyrirvari
Varan er eign Bjarnarins þar til kaupverð hefur verið greitt að fullu, að því marki sem slíkur eignarréttarfyrirvari er heimill samkvæmt lögum.
Reikningsviðskipti, greiðsludreifing eða önnur lánaform breyta ekki eignarrétti seljanda fyrr en full greiðsla hefur borist.
Sé vara afhent eða send út áður en full greiðsla hefur borist, breytir það ekki eignarrétti seljanda, að því marki sem lög heimila. Ef greiðsla berst ekki áskilur Björninn sér rétt til að gera viðeigandi ráðstafanir til innheimtu, stöðvunar afhendingar, endurheimtu vöru eða annarra lögmætra úrræða.

7. Breytingar eftir að framleiðsla hefst
Eftir að framleiðsla hefst geta breytingar á verki haft áhrif á verð, afhendingartíma og framleiðsluferli.
Allar breytingar eftir að framleiðsla hefst skulu samþykktar skriflega af Birninum áður en þær taka gildi.
Fyrir breytingar eftir að framleiðsla hefst er að lágmarki rukkað 50.000 kr. fyrir hverja breytingu, enda endurspegli það undirbúning, stöðvun, endurskipulagningu, teiknivinnu eða aðra vinnu sem breytingin veldur. Ef breyting er umfangsmeiri er rukkað sérstaklega fyrir aukalegt efni, vinnu, tafir og annan sannanlegan kostnað.
Ef breyting kaupanda leiðir til þess að þegar framleiddir hlutir nýtast ekki, ber kaupandi kostnað af þeim hlutum, nema annað sé samið skriflega.

8. Teikningar og samþykki framleiðslu
Framleiðsla hefst ekki fyrr en kaupandi hefur samþykkt lokateikningar, efnisval, liti, útfærslur og aðrar nauðsynlegar forsendur verksins.
Séu notaðar teikningar frá öðrum en Birninum skulu þær innihalda allar nauðsynlegar málsetningar, skýringar, efnislýsingar og aðrar upplýsingar sem þarf til framleiðslu.
Björninn ber ekki ábyrgð á villum, töfum eða aukakostnaði sem rekja má til ófullnægjandi, rangra eða óljósra upplýsinga frá kaupanda, arkitekt, hönnuði, verktaka eða öðrum aðila á vegum kaupanda.
Björninn áskilur sér rétt til að fresta framleiðslu ef nauðsynlegar upplýsingar vantar, ef teikningar eru óljósar eða ef samþykki kaupanda liggur ekki fyrir.
Tafir sem verða vegna upplýsinga, samþykkta eða ákvarðana sem vantar frá kaupanda eða aðilum á hans vegum teljast ekki tafir á ábyrgð Bjarnarins.

9. Bæsun, litaval og prufur
Val á lit, bæsun og yfirborðsáferð skal fara fram með sérstakri nákvæmni.
Kaupandi skal samþykkja litanúmer, prufu eða aðra viðmiðun skriflega áður en framleiðsla hefst. Bæði Björninn og kaupandi skulu hafa aðgang að staðfestingu samþykkis.
Prufustykki, að jafnaði 40 x 40 cm, er unnið og er almennt tilbúið innan 2 til 4 virkra daga, nema annað sé tilkynnt.
Fyrstu þrjár litaprufur eru innifaldar nema annað komi fram í tilboði. Eftir það er rukkað 10.000 kr. fyrir hverja prufu, sem bætist við lokareikning.
Eftir að framleiðsla hefst er almennt ekki hægt að breyta lit eða yfirborðsáferð án aukakostnaðar. Ef kaupandi óskar eftir breytingu eftir að framleiðsla hefst, ber hann kostnað af þeim hlutum sem þegar hafa verið framleiddir eða unnir samkvæmt áður samþykktri prufu.
Framleiðsla byggist á samþykktri prufu. Minniháttar frávik í lit, áferð, viðaráferð, æðum, gljáa eða náttúrulegum efniseiginleikum geta komið fram og teljast ekki galli nema frávikin séu veruleg eða um annað hafi verið sérstaklega samið.
Rísi ágreiningur um lit eða áferð er heimilt að leita álits óháðs fagaðila. Kostnaður vegna slíks mats fer eftir niðurstöðu máls eða samkomulagi aðila.

10. Afhending
Allar innréttingar eru afhentar fullbúnar með því innvolsi sem samið hefur verið um, svo sem skúffum, hillum, lömum og öðrum fylgihlutum, nema eðli verksins eða aðstæður kalli á að hluti efnis sé settur saman á áfangastað.
Spónlagðir fletir eða viðkvæmir hlutir geta verið fluttir sérstaklega pakkaðir til að draga úr hættu á skemmdum.
Ef ekki er unnt að setja tiltekinn búnað í vöruna í húsnæði Bjarnarins, fylgir hann með sendingu eða afhendingu, nema annað sé samið.
Flutningur er ekki innifalinn í tilboðum nema það komi skýrt fram.
Kaupandi getur óskað eftir flutningi á höfuðborgarsvæðinu gegn sérstöku gjaldi. Við útgáfu þessara skilmála er slíkt gjald 14.900 kr. með virðisaukaskatti á hverja ferð, nema annað sé samið.
Mælt er með að fagaðilar annist stærri flutninga eða flutninga á viðkvæmum vörum. Ef kaupandi sér sjálfur um flutning, eða fær þriðja aðila til þess, ber Björninn ekki ábyrgð á tjóni sem verður við þann flutning.
Ef vara skemmist í flutningi sem er á ábyrgð þriðja aðila eða kaupanda, ber kaupandi ábyrgð á að beina kröfu að viðkomandi flutningsaðila eða tryggingafélagi, eftir því sem við á.

11. Seinkun afhendingar
Afhendingartími er áætlaður nema sérstaklega sé samið um fastan afhendingardag skriflega.
Ef afhending seinkar vegna óviðráðanlegra aðstæðna, svo sem verkfalla, veðurs, tafa í vöruflutningum, skorts á efni, tafa hjá birgjum, veikinda, bilana eða annarra atvika sem Björninn hefur ekki með sanngjörnum hætti stjórn á, skal kaupandi upplýstur eins fljótt og kostur er og ný afhendingaráætlun gefin upp.
Tafir sem rekja má til kaupanda, aðila á hans vegum, ófullnægjandi upplýsinga, breytingabeiðna, seinkaðra samþykkta, ógreiddra reikninga eða aðstæðna á verkstað teljast ekki tafir á ábyrgð Bjarnarins.
Ef afhending tefst um meira en 30 daga frá áætlaðri afhendingu af ástæðum sem Björninn ber ábyrgð á, getur kaupandi átt rétt á sanngjörnum afslætti af þeim hluta verks sem seinkaði. Slíkur afsláttur skal taka mið af umfangi tafar, áhrifum hennar og verðmæti þess hluta sem seinkaði. Hámarksafsláttur vegna slíkrar tafar er 15% af verði þeirra vara sem seinkuðu, nema annað leiði af ófrávíkjanlegum lögum.

12. Uppsetning
Uppsetning er aðeins innifalin ef það kemur sérstaklega fram í tilboði eða samningi.
Ef Björninn eða uppsetningarteymi á hans vegum annast uppsetningu, ber Björninn ábyrgð á faglegri framkvæmd uppsetningar samkvæmt almennum reglum, viðurkenndum verkháttum og þeim skilmálum sem hér koma fram.
Kaupandi ber ábyrgð á að rými þar sem uppsetning fer fram sé tilbúið, hreint, aðgengilegt og hæft til uppsetningar á umsömdum tíma. Þar undir fellur meðal annars að nægilegt vinnurými sé til staðar, að aðgengi að húsnæði sé tryggt og að aðrir iðnaðarmenn eða framkvæmdir hindri ekki eðlilega uppsetningu.
Veggir, gólf, loft, lagnir, rafmagn, frárennsli, vatnslagnir, loftræsting, raki, hiti og aðrar aðstæður á verkstað skulu vera í samræmi við það sem eðlilegt er fyrir uppsetningu innréttinga og í samræmi við þær forsendur sem lagðar voru til grundvallar tilboði, mælingum eða teikningum.
Kaupandi ber ábyrgð á því að allar nauðsynlegar lagnir, tengingar og undirbúningur af hálfu annarra fagaðila séu tilbúin áður en uppsetning hefst, nema sérstaklega hafi verið samið skriflega um að Björninn sjái um eða útvegi slíka þjónustu.
Flutningur, rafmagnsvinna, pípulagnavinna, breytingar á húsnæði, förgun, múr- eða málningarvinna, niðurrif, færsla lagna og önnur vinna þriðja aðila er ekki innifalin í uppsetningu nema það komi skýrt fram í tilboði eða samningi.
Smávægilegar aðlaganir sem teljast eðlilegur hluti af uppsetningu eru innifaldar, svo sem stilling skápa, festingar og minniháttar frágangur. Ef aðstæður á verkstað víkja frá forsendum, svo sem vegna skekkja í veggjum eða gólfi, ófullnægjandi undirbúnings, rangra mælinga frá kaupanda eða breytinga á framkvæmdastað, getur það haft áhrif á verð, umfang og tímasetningu verks.
Ef uppsetning getur ekki farið fram á umsömdum tíma vegna aðstæðna sem kaupandi ber ábyrgð á, áskilur Björninn sér rétt til að fresta uppsetningu og rukka fyrir sannanlegan kostnað, biðtíma, aukaferðir, endurskipulagningu og annan kostnað sem af því hlýst.
Ef kaupandi setur vöruna upp sjálfur, eða fær þriðja aðila til uppsetningar, ber Björninn ekki ábyrgð á skemmdum, bilunum, skekkjum, rangri virkni eða öðru tjóni sem rekja má til slíkrar uppsetningar, aðstæðna á verkstað eða vinnu þriðja aðila.

13. Ágreiningur vegna uppsetningar
Komi upp ágreiningur um uppsetningu, frágang, gæði vinnu eða hvort atriði teljist galli, skulu aðilar leitast við að leysa málið með skjótum, málefnalegum og faglegum hætti.
Kaupandi skal tilkynna athugasemdir vegna uppsetningar skriflega til Bjarnarins eins fljótt og kostur er eftir að hann verður þeirra var. Tilkynning skal innihalda skýra lýsingu á því sem kaupandi telur ábótavant og, eftir því sem unnt er, myndir eða önnur gögn sem sýna viðkomandi atriði.
Björninn skal fá hæfilegt tækifæri til að skoða meintan galla eða athugasemd áður en kaupandi lætur þriðja aðila framkvæma viðgerð, breytingu eða úttekt á verkinu. Ef kaupandi lætur framkvæma slíkar úrbætur án þess að Björninn hafi fengið eðlilegt tækifæri til að skoða málið og bregðast við, getur það haft áhrif á ábyrgð Bjarnarins og rétt kaupanda til endurgreiðslu kostnaðar, eftir því sem heimilt er samkvæmt lögum.
Ef í ljós kemur að athugasemd eða galli stafar af vinnu eða vanefndum sem Björninn eða aðilar á hans vegum bera ábyrgð á, skal Björninn bæta úr innan hæfilegs tíma, með þeim hætti sem eðlilegt og sanngjarnt telst miðað við eðli máls.
Ef í ljós kemur að vandamál stafar af aðstæðum á verkstað, röngum eða ófullnægjandi upplýsingum frá kaupanda, vinnu annarra iðnaðarmanna, breytingum sem kaupandi hefur óskað eftir, raka, skekkjum, rangri notkun eða öðrum atriðum sem Björninn ber ekki ábyrgð á, ber kaupandi ábyrgð á kostnaði vegna skoðunar, úrbóta, endurkomu, aukaferða og annarrar vinnu sem af því hlýst.
Ef aðilar eru ósammála um hvort um galla sé að ræða, orsök vandamáls eða eðlilegan frágang, er heimilt að leita álits óháðs fagaðila. Aðilar skulu, eftir því sem unnt er, koma sér saman um val á slíkum fagaðila. Kostnaður við mat eða úttekt skal almennt borinn af þeim aðila sem niðurstaða matsins fellur gegn, nema aðilar semji um annað eða annað leiði af lögum.

14. LED-lýsing og sérlausnir
Björninn áskilur sér rétt til að setja ekki upp sér LED-lýsingu eða sérlausnir sem víkja frá stöðluðum lausnum Bjarnarins, nema sérstaklega hafi verið samið um það skriflega.
Stöðluð LED-lýsing Bjarnarins er að jafnaði í hliðum skápa en ekki í toppi eða botni, nema annað komi fram í tilboði.
Ef kaupandi óskar eftir sérlýsingu, sérbúnaði eða lausnum sem Björninn setur ekki upp, fylgir slíkur búnaður með í afhendingu eftir því sem við á. Kaupandi ber þá ábyrgð á uppsetningu eða ráðningu viðeigandi fagaðila.

15. Geymslugjöld og ósóttar vörur
Kaupandi skal sækja eða taka við vöru innan hæfilegs tíma eftir að Björninn hefur tilkynnt að vara sé tilbúin til afhendingar.
Geymslugjöld geta byrjað að reiknast 48 klukkustundum eftir fyrstu afhendingartilkynningu, miðað við virka daga, ef kaupandi hefur ekki sótt vöru, tekið við henni eða samið sérstaklega um annan afhendingartíma.
Geymslugjöld eru:
20.000 kr. á dag fyrstu fimm virku dagana.
50.000 kr. á dag frá og með sjötta virka degi.
Geymslugjöldum er ætlað að mæta kostnaði vegna rýmis, umsýslu, tryggingar, tilfærslu og annarra útgjalda sem fylgja geymslu fullunninnar vöru. Ef kaupandi telur gjaldið ósanngjarnt miðað við aðstæður skal hann tilkynna það skriflega eins fljótt og kostur er.
Ef vara hefur ekki verið sótt eða móttekin innan 60 daga frá afhendingartilkynningu, þrátt fyrir ítrekun, áskilur Björninn sér rétt til að grípa til lögmætra ráðstafana vegna vörunnar. Slíkar ráðstafanir geta meðal annars falist í áframhaldandi geymslu á kostnað kaupanda, sölu vörunnar, förgun eða öðrum úrræðum, eftir því sem heimilt er samkvæmt lögum.
Áður en vara er seld eða fargað skal Björninn, eftir því sem unnt er, senda kaupanda skriflega lokaviðvörun og veita hæfilegan lokafrest til að sækja eða taka við vörunni.
Ef vara er seld eða henni ráðstafað vegna vanefnda kaupanda skal andvirði, ef eitthvað fæst, ráðstafað upp í geymslugjöld, innheimtukostnað, útlagðan kostnað og aðrar gjaldfallnar kröfur Bjarnarins. Ef afgangur verður skal hann greiddur kaupanda. Ef andvirði nægir ekki fyrir kostnaði heldur Björninn rétti sínum til innheimtu eftirstöðva.

16. Ábyrgð og gallar
Björninn leggur áherslu á fagleg vinnubrögð og góða endingu vara sinna.
Sérstök ábyrgð Bjarnarins gildir frá afhendingu og er eftirfarandi, nema annað sé sérstaklega tekið fram:
3 ár fyrir innréttingar í þurrum rýmum.
2 ár fyrir eldhús, votrými og rými þar sem aukið álag, raki eða hiti getur haft áhrif á endingu.
Þessi sérstaka ábyrgð takmarkar ekki lögbundinn rétt kaupanda vegna galla samkvæmt ófrávíkjanlegum lögum, þar á meðal þeim rétti sem neytendur kunna að eiga samkvæmt neytendakaupalögum.
Ábyrgð Bjarnarins nær almennt til galla sem rekja má til efnis, framleiðslu eða uppsetningar sem Björninn eða aðilar á hans vegum bera ábyrgð á. Dæmi um atriði sem kunna að falla undir ábyrgð eru laus kantlíming, gallar í skúffubúnaði, laus handföng eða sambærileg atriði, enda sé ekki um að ræða skemmd sem rekja má til notkunar, aðstæðna eða utanaðkomandi þátta.
Kaupandi skal tilkynna meintan galla skriflega eins fljótt og kostur er eftir að hann verður hans var. Tilkynning skal innihalda lýsingu á gallanum og, ef mögulegt er, myndir eða önnur gögn sem sýna vandamálið.
Björninn leitast við að skoða tilkynnt ábyrgðarmál innan 30 daga frá því að fullnægjandi tilkynning berst. Úrbætur fara fram innan hæfilegs tíma að teknu tilliti til eðlis máls, framboðs varahluta, aðstæðna og umfangs úrbóta.

17. Atriði sem falla almennt utan ábyrgðar
Ábyrgð Bjarnarins nær ekki til skemmda, bilana eða galla sem rekja má til:
rangrar eða óeðlilegrar notkunar,
rangrar þrifa- eða viðhaldsaðferðar,
óviðeigandi uppsetningar af hálfu kaupanda eða þriðja aðila,
breytinga eða viðgerða sem ekki eru framkvæmdar af Birninum eða með samþykki hans,
óviðeigandi raka, hita, kulda, loftræstingar eða annarra umhverfisskilyrða,
vatnstjóns, leka, myglu, raka eða annarra aðstæðna í húsnæði kaupanda,
eðlilegs slits,
höggs, rispa, álags eða annarra utanaðkomandi skemmda,
flutnings sem kaupandi eða þriðji aðili annast,
tafa, galla eða tjóns sem stafar af öðrum iðnaðarmönnum eða verktökum á vegum kaupanda,
aðstæðna á verkstað sem eru ekki í samræmi við forsendur tilboðs, mælinga, teikninga eða eðlilegar kröfur til uppsetningar innréttinga.
Björninn ber ekki ábyrgð á skemmdum sem rekja má til þess að vara er geymd, flutt, sett upp eða notuð við aðstæður sem henta ekki efninu eða útfærslunni.

18. Takmörkun ábyrgðar
Að því marki sem heimilt er samkvæmt lögum takmarkast ábyrgð Bjarnarins við beint tjón sem rekja má til saknæmrar háttsemi, galla eða vanefnda af hálfu Bjarnarins.
Björninn ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, rekstrartapi, tekjutapi, töfum hjá öðrum verktökum, afleiddum kostnaði eða öðru sambærilegu tjóni, nema slíkt leiði af ófrávíkjanlegum lögum.
Að því marki sem heimilt er samkvæmt lögum takmarkast fjárhagsleg ábyrgð Bjarnarins við kaupverð þeirrar vöru eða þjónustu sem krafa varðar.
Ekkert í þessum skilmálum takmarkar réttindi kaupanda sem ekki er heimilt að víkja frá með samningi.

19. Sönnun kaupanna
Kaupandi skal geta sýnt fram á kaup, til dæmis með reikningi, greiðslukvittun, tilboði, tölvupósti, kaupnótu eða öðrum sannanlegum hætti.
Skortur á tilteknu skjali útilokar ekki rétt kaupanda ef hann getur sýnt fram á kaupin með öðrum fullnægjandi hætti.

20. Myndir, verklokaskráning og markaðsnotkun
Björninn eða aðilar á hans vegum kunna að taka myndir af verki fyrir uppsetningu, á meðan uppsetningu stendur og við verklok í þeim tilgangi að skrá aðstæður, ástand, gæði, frágang og verklok. Slíkar myndir eru fyrst og fremst notaðar til innri skráningar, gæðamála, úrlausnar ágreinings og þjónustu við kaupanda.
Myndir sem teknar eru inni á heimili eða í húsnæði kaupanda skulu teknar með eðlilegri tillitssemi. Leitast skal við að forðast að persónugreinanleg atriði, verðmæti, fjölskyldumyndir, börn, heimilisfang eða önnur viðkvæm atriði komi fram.
Björninn notar ekki myndir úr húsnæði kaupanda í markaðsefni, á vef, samfélagsmiðlum eða í auglýsingum nema með samþykki kaupanda, nema myndir séu með öllu ópersónugreinanlegar og sýni eingöngu verk eða hluta þess með almennum hætti.
Kaupandi getur hvenær sem er óskað eftirþví að myndir úr hans húsnæði séu ekki notaðar í markaðslegum tilgangi.

21. Persónuvernd
Björninn vinnur persónuupplýsingar í tengslum við tilboð, pantanir, reikningagerð, afhendingu, samskipti, innheimtu, bókhald, þjónustu og eftirfylgni.
Persónuupplýsingar eru aðeins unnar í lögmætum tilgangi og að því marki sem nauðsynlegt er vegna viðskipta við kaupanda, lagaskyldu, samningssambands eða lögmætra hagsmuna Bjarnarins.
Björninn kann að miðla nauðsynlegum upplýsingum til þriðju aðila þegar það er nauðsynlegt vegna framkvæmdar samnings, svo sem til bókara, greiðsluþjónustu, flutningsaðila, innheimtuaðila, lögmanna, tryggingafélaga, upplýsingatækniaðila eða opinberra aðila þegar lagaskylda krefst þess.
Björninn selur ekki persónuupplýsingar kaupanda til þriðju aðila.
Kaupandi getur óskað eftir upplýsingum um vinnslu persónuupplýsinga sinna og eftir atvikum óskað eftir leiðréttingu, eyðingu eða takmörkun vinnslu, í samræmi við gildandi persónuverndarlög.
Nánari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga skulu koma fram í persónuverndarstefnu Bjarnarins, ef hún er birt sérstaklega.

22. Flutningur áhættu
Áhætta af vöru flyst almennt til kaupanda við afhendingu, nema annað leiði af lögum eða samkomulagi aðila.
Ef kaupandi sækir vöru sjálfur eða lætur þriðja aðila annast flutning, ber kaupandi ábyrgð á vörunni frá því að hún er afhent til flutnings.
Ef Björninn annast flutning eða felur flutningsaðila að afhenda vöru fyrir sína hönd, fer áhættuflutningur eftir því sem samið hefur verið um og gildandi lögum.

23. Sérsmíði og neytendakaup
Vörur Bjarnarins eru í mörgum tilvikum sérsmíðaðar samkvæmt óskum, málum, teikningum, efnisvali eða litavali kaupanda.
Þar sem um sérsmíðaðar vörur er að ræða getur réttur til afturköllunar eða skilaréttar verið takmarkaður, eftir því sem heimilt er samkvæmt lögum. Þetta takmarkar þó ekki rétt kaupanda vegna galla eða vanefnda samkvæmt ófrávíkjanlegum lögum.

24. Kvartanir og úrlausn mála
Kaupandi skal beina kvörtunum, athugasemdum eða tilkynningum um galla skriflega til Bjarnarins á netfangið bjorninn@bjorninninnrettingar.is.
Í tilkynningu skal koma fram nafn kaupanda, lýsing á verki eða vöru, dagsetning kaupa eða afhendingar eftir því sem unnt er, lýsing á vandamáli og gögn sem styðja málið, svo sem myndir.
Björninn leitast við að bregðast við kvörtunum innan hæfilegs tíma og leysa mál með sanngjörnum og faglegum hætti.
Kaupandi skal veita Birninum hæfilegt tækifæri til að skoða meintan galla, leggja mat á orsök hans og bæta úr, ef um ábyrgðaratriði er að ræða, áður en kaupandi lætur þriðja aðila framkvæma viðgerð eða breytingu á verkinu.
Ef aðilar eru ósammála um orsök galla, umfang tjóns, gæði vinnu eða réttmæti kröfu, er heimilt að leita álits óháðs fagaðila. Kostnaður vegna slíks mats fer eftir niðurstöðu máls, samkomulagi aðila eða því sem leiðir af lögum.

25. Lög og varnarþing
Um samninga Bjarnarins fer samkvæmt íslenskum lögum.
Komi upp ágreiningur skulu aðilar leitast við að leysa hann með samkomulagi og, eftir atvikum, sáttamiðlun áður en málið er lagt fyrir dómstóla.
Takist ekki að leysa ágreining með samkomulagi má reka mál fyrir Héraðsdómi Reykjaness, nema annað leiði af ófrávíkjanlegum reglum um varnarþing, sérstaklega þegar kaupandi er neytandi.
 
26. Breytingar á skilmálum
Björninn áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum. Þeir skilmálar sem gilda um einstök viðskipti eru þeir skilmálar sem kaupandi samþykkir við gerð samnings, greiðslu staðfestingargjalds eða staðfestingu pöntunar, nema annað sé sérstaklega samið um skriflega.

bottom of page