top of page
Lógó án bakgrunns.png
Verkstæði í hafnafirðinum

Viltu smíða eitthvað glæsilegt?

Starf hjá Birninum

Björninn er rótgróið íslenskt innréttingafyrirtæki í Hafnarfirði með yfir hálfrar aldar reynslu. Við sérhæfum okkur í sérsmíðuðum innréttingum, borðplötum og lausnum fyrir heimili og fyrirtæki.
Við leitum að jákvæðum og áreiðanlegum einstaklingi með reynslu í smíði til að ganga til liðs við lítið en öflugt teymi.

 

Innréttinga pöntun

Helstu verkefni

  • Almenn vinna í framleiðslu, svo sem spónlagning, sögun, samsetning og gæðaeftirlit

  • Að fylgja verklagi og tryggja vönduð vinnubrögð

  • Þátttaka í daglegu skipulagi og samvinnu á verkstæði

  • Samskipti við samstarfsfólk, birgja og viðskiptavini

Við leitum að einstaklingi með

  • Mikla reynslu í smíði

  • Góð vinnubrögð og jákvætt viðmót

  • Ábyrgð, nákvæmni og sjálfstæði

  • Getu til að lesa úr teikningum

  • Góð samskipti og vilja til að læra

Fyrirkomulag og umsóknir

Um fullt starf er að ræða á trésmíðaverkstæði í Hafnarfirði. Laun og ráðningarkjör samkvæmt samkomulagi. Leitum að einstaklingi sem vill starfa í traustu og stöðugu teymi til lengri tíma.

Sendu umsókn, ferilskrá og stuttan kynningartexta í gegnum umsóknareyðublaðið hér að neðan eða á tölvupósti.

Afmæli
Day
Month
Year
Menntun.
bottom of page